VIÐ KUNNUM OKKAR FAG

Umferðartalning

Umferðartalningu má skipta upp í 3 flokka; gangandi, hjólandi og akandi. Talning á umferð er mikilvægt atriði þegar tryggja skal öryggi vegfarenda og fylgjast með álagi og nýtingu á umferðarmannvirkjum. Nákvæmar talningar sem tryggja rétt gögn eru mikilvægur þáttur í að byggja upp net af öruggum vegum og göngustígum.

Þjónusta Vista fyrir umferðartalningar

Vista býður upp á fjölmarga kosti fyrir umferðartalningar. Hægt er að fá lausnir sem henta í stuttan tíma eða lausnir sem eru festar fyrir langtímamælingar.  Tryggðu öryggi með nákvæmum talningum með fjölmörgum lausnum sem eru í boði. Fáðu heildaryfirsýn yfir notkun á göngu- og hjólastígum, þar sem hægt er að sjá álag eftir tíma dags og staðsetningum. Einnig er í boði videoeftirlit sem býður upp á fjölmarga kosti og mun nákvæmari talningar.

Lausnir Vista fyrir umferðartalningar hafa árum saman hjálpað sveitarfélögum og einkaaðilum að tryggja öryggi.

Talning ferðamanna

Aukinn fjöldi ferðamanna kallar á eftirlit með fáförnum stöðum sem þarf að verja fyrir átroðningi. Vista býður upp á mæla fyrir talningar á bílaumferð og gangandi vegfarendum, og sinnir eftirliti. Mælarnir falla vel inn í umhverfið.

Áskoranir í umferðartalningu
  • Tryggðu öryggi

  • Nákvæm greining

  • Álagseftirlit

  • Heildaryfirsýn

  • Video eftirlit

Heyrðu í sérfræðingi okkar

Heiðar Karlsson – heidar@vista.is

TENGD VERKEFNI