Snjallgámar og eftirlit
VIÐ KUNNUM OKKAR FAG

SNJALLGÁMAR

Sorpumhirða og þjónusta er mikilvægur þáttur í starfsemi sveitarfélaga og fyrirtækja. Með tilkomu fjölmargra tegunda af sorpgámum sem þarf að losa á réttum tíma er þörf á eftirliti með notkun í nær rauntíma. Mikill sparnaður er af því að vera ekki að losa hálftóma sorpgáma eða keyra langar leiðir til að sækja gáma sem eru ekki fullir.

Eftirlitskerfi Vista fyrir snjallgáma

Vista býður upp á sorphirðukerfi sem gerir notendum kleift að fylgjast með notkun og losun sorpgáma í rauntíma. Vista býður upp á mæla sem henta öllum tegundum sorpgáma, þar á meðal djúpgámum og framhlaðningum. Sorpeftirlitskerfið gerir einnig mögulegt að skipuleggja losunarferðir, sem tryggir hámarksnýtingu sorpbíla. Með þessu kerfi er hægt að spara verulegar fjárhæðir og draga úr kolefnisspori fyrirtækja. Fáðu heildaryfirsýn á sorpið með eftirlitskerfi sem leysir allar þínar þarfir.

Áskoranir í sorphirðu
  • Mengun

  • Margar gerðir gáma

  • Kolefnisspor

  • Fjöldi ferða

  • Losunartími

Heyrðu í sérfræðingi okkar

Heiðar Karlsson – heidar@vista.is

TENGD VERKEFNI