
VIÐ KUNNUM OKKAR FAG
JARÐVEGSHREYFINGAR
Vista hefur í gegnum árin sinnt fjöldanum öllum af verkefnum tengdum eftirliti með jarðvegi og sprungum. Eftirlit með óstöðugum jarðvegi er oft á tíðum mikið öryggismál og hluti af verndun innviða og almennings. Hreyfingar í jarðvegi geta verði vegna frosts, vatns og þrýstings. Margar af stærstu stofnunum Íslands hafa notað búnað og þekkingu frá Vista til að tryggja öryggi.
Þjónusta Vista fyrir jarðvegseftirlit
Vista hefur áratugareynslu af mælingum á óstöðugum jarðvegi. Hefur Vista meðal annars sinnt verkefnum fyrir sveitarfélög, Vegagerðina, Landsvirkjun og Veðurstofu Íslands, þar sem verið er að fylgjast með hreyfingum á jarðvegi í rauntíma. Vista getur boðið upp á mikinn fjölda lausna sem henta hverju verkefni fyrir sig, stóru sem smáu.
Rauntímaeftirlit gefur til kynna alla breytingar sem kunna að verða og þá er hægt að bregðast hratt við þegar tryggja þarf öryggi innviða, íbúa eða starfsmanna.


