VIÐ KUNNUM OKKAR FAG

GÖTULJÓSASTÝRINGAR

Sveitarfélög og stærri fyrirtæki með eigin götulýsingarkerfi þurfa að tryggja skilvirka stjórn á lýsingu — að ljós kvikni í myrkri og slokkni þegar birtir. Með aukinni áherslu á sjálfbæra orkunýtingu er mikilvægt að geta stýrt orkunotkun af meiri nákvæmni en áður.

Stjórnkerfi götulýsingar þarf að vera sveigjanlegt og bjóða upp á fjölbreyttar stillingar. Það þarf að vera einfalt að kveikja og slökkva á lýsingu við viðhaldsvinnu að degi til og halda utan um allar breytingar. Kerfið okkar veitir fullkomna yfirsýn yfir allan búnað, ásamt sveigjanlegum stillingarmöguleikum sem tryggja hámarksnýtni og hagkvæman rekstur.

Þjónusta Vista fyrir götuljósastýringar

Vista býður upp á fullkomin götuljósakerfi sem uppfylla ströngustu gæðakröfur. Kerfin eru hönnuð af reyndum sérfræðingum með mikla reynslu í þróun og uppsetningu götulýsingar.

Sveigjanleg hönnun kerfanna styður allar helstu fjarskiptaleiðir, þar á meðal GSM, NB-IoT og LoRaWAN, sem tryggir örugga og áreiðanlega virkni. Með þessari snjallljósastýringu  er sérstök áhersla lögð á að lágmarka ljósmengun og hámarka orkunýtni.

Kerfið býður upp á nákvæma stjórnun, hvort sem um er að ræða staka lampa eða heildarstýringu á götuskápum, sem veitir notendum fullkomna yfirsýn og stjórn.

Áskoranir í götulýsingum
  • Orkunotkun

  • Stýringar á stökum lömpum

  • Ljósmengun

  • Skortur á yfirsýn

  • Eignaumsjón

Heyrðu í sérfræðingi okkar

Heiðar Karlsson – heidar@vista.is