Vista er 42 ára í dag!

03/09/2026

🎈Afmæliskveðja frá okkur 🎈
Á þessum áratugum hafa margar breytingar orðið í þessu fjölskyldufyrirtæki; Nýjar vörur, nýtt starfsfólk, ný skrifstofa og svo mætti lengi telja.

En eitt hefur aldrei breyst og það er markmið okkar að gera alltaf okkar besta fyrir okkar viðskiptavini.

Vista var stofnað 3. september 1984 af Andrési Andréssyni. Öll fjögur börn hans hafa á einhverjum tímapunkti starfað hjá eða fyrir Vista, auk þess sem þriðja kynslóð fjölskyldunnar byrjaði í sumarstarfi nú í sumar.

Í dag er sonur og alnafni Andrésar tekinn við sem framkvæmdastjóri. Hann tók við starfinu af Heiðari Karlssyni sem er forstöðumaður viðskiptaþróunar.

 

🥳Við þökkum ykkur kærlega fyrir samstarfið og hlökkum til að halda áfram á sömu braut!

– Starfsfólk Vista