Vindmyllur í mörgum gerðum
23/10/2024

Vista hefur hafið sölu á vindmyllum frá Leading Edge Power. Leading Edge Power er leiðandi framleiðandi af vindtúrbínu og orkulausna. Búnaður frá Leading Edge hefur reynst afar vel við erfiðar aðstæður um heim allan og hentar því sérstaklega vel við íslenskar aðstæður.
Þegar kemur að raforkuþörf á afskekktum stöðum þarf að huga að mörgum þáttum. Veðuraðstæður geta verið krefjandi, aðgengi að þjónustu er takmarkað og áreiðanleiki búnaðar skiptir sköpum. Vindtúrbínur frá Leading Edge Power eru hannaðar með þessar áskoranir í huga og hafa sannað sig við erfiðustu aðstæður. Þær eru einstaklega endingargóðar og þarfnast lágmarks viðhalds, sem er mikilvægur kostur þegar unnið er fjarri byggð.
Leading Edge Power býður upp á fjölbreytt úrval vindtúrbína sem henta fyrir mismunandi aðstæður og orkuþarfir. Hvort sem um ræðir minni vindtúrbínur fyrir sumarbústaði og hafnir eða stærri einingar fyrir iðnað og fyrirtæki, þá eru til lausnir sem henta. Allar gerðir eru hannaðar með sömu gæðakröfur í huga og eru þekktar fyrir áreiðanleika sinn.
hérna eru fleiri




