Við erum 40 ára!
16/10/2024

Verkfræðistofan Vista hélt upp á 40 ára starfsafmæli sitt með veglegri veislu á Vox Club á dögunum. Fjöldi gesta mætti til að fagna með okkur þessum merka áfanga, þar á meðal núverandi og fyrrverandi viðskiptavinir, fyrrum starfsmenn og aðrir góðir vinir.
Andrés Þórarinsson, stofnandi Vista hélt tölu þar sem var farið yfir sögu fyrirtækisins og helstu verkefni þess í gegnum árin, sem gaf gestum innsýn í þá þróun og þeim árangri sem Vista hefur náð á fjórum áratugum.
Í gegnum 40 ára sögu Vista hafa verkefnin verið einstaklega fjölbreytt. Meðal verkefna má nefna stýringar í loðnuverksmiðjum, stýringar í pakkningavélum í Malasíu, Kína og Kólumbíu, og orkusparnaðarkerfi á Hótel Loftleiðum og Eimskipum. Eitt mikilvægasta framlag Vista var þróun hugbúnaðarins VDV, sem varð undirstaða flestra verkefna stofunnar og hefur gegnt lykilhlutverki í velgengni fyrirtækisins.
Í tilefni af afmælinu kynnti Heiðar Karlsson framkvæmdastjóri Vista nýtt merki fyrirtækisins, sem endurspeglar nútímalega ásýnd þess og framtíðarsýn. Að auki var tilkynnt að ný og endurbætt heimasíða Vista væri komin í loftið, sem býður upp á betri yfirsýn yfir þjónustu og verkefni fyrirtækisins.
Veislan var mjög skemmtileg og það var afar gaman að hitta gesti og gamla félaga. Það var fróðlegt að líta yfir farinn veg og rifja upp gamla tækni og sjá hversu miklum breytingum umhverfið hefur tekið.
Við hlökkum til að takast á við næstu áratugi og leysa úr þeim verkefnum sem við tökum okkur fyrir hendur.
Við þökkum gestum okkar kærlega fyrir að koma og fagna með okkur.
hérna eru fleiri





















