Vista með í Verk og vit í 20 ár

17/03/2026

Vista tekur þátt í sýningunni Verk og vit sem verður haldin dagana 19.-22. mars.

Verk og vit heldur upp á 20 ára afmæli sitt í ár og við erum stolt af því að hafa tekið þátt í sýningunni frá upphafi.

Við verðum í bás F11.

 

Sérfræðingur frá Eco-Counter verður með fyrirlestur á föstudeginum kl. 13-14, um talningar á ferðamönnum og gestum með radartækni.

Fyrirlesturinn verður í sal 4 og er opinn öllum gestum á sýningunni.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur!