Verk og vit 2026 – Gestir og verðlaun
27/03/2026

Takk fyrir innlitið á Verk og vit!
Það var ánægjulegt að fá svona margar heimsóknir í básinn okkar. Þrátt fyrir að veðrið væri aðeins að minna á sig, var sýningin vel sótt og gestir gáfu sér góðan tíma í að skoða og spjalla. Mikið var spurt út í teljarana okkar, bæði í básnum og í anddyri Laugardalshallar, en eins og mörg ykkar vita sáum við um talningu á gestum sýningarinnar. Einnig vakti vatnssúla í básnum mikla athygli. Eggert hjá Vista á heiðurinn af smíði súlunnar en með henni var hann að sýna hvernig vatnshæðarnemi virkar.
Neðst á síðunni er hægt að skoða myndir frá sýningunni.
Verðlaunaafhending Verk og vit 2026
Fagleg viðurkenning á starfi Vista
Vista vann til verðlauna á stórsýningunni Verk og vit sem fór fram dagana 19.-22. mars. Verðlaunin eru í flokknum Tækniþróun & lausnir. Við erum virkilega stolt af þessari viðurkenningu á okkar starfi, sérstaklega í ljósi þess að um 100 sýnendur tóku þátt í sýningunni í ár. Sýningin er virkilega fagleg og mikill metnaður lagður í sýningarrýmin. Andrés Andrésson framkvæmdastjóri og Berglind Baldursdóttir markaðsstjóri tóku á móti verðlaununum fyrir hönd starfsfólks og eigenda Vista.
Talning gesta á Verk og vit
Vista hefur tekið þátt í Verk og vit frá upphafi og nú í ár langaði okkur að sýna gestum hvað við erum að vinna í fjölbreyttum verkefnum. Það gerðum við meðal annars með því að sjá um talningu á gestum Verk og vit, enda eru mælingar okkar sérsvið.
Teljarar frá Eco-Counter
Talning á gestum var framkvæmd með búnaði frá Eco-Counter, sem Vista er með umboð fyrir. Í anddyri Laugardalshallar var hægt að skoða skjá með talningu hvers dags. Talningavélin var staðsett fyrir ofan skjáinn. Til gamans má geta þess að það tók okkar fólk ekki nema um 4 tíma að setja upp búnaðinn og virkja hann.
Teljarar frá Eco-Counter eru til í mismunandi gerðum. Búnaður fyrir göngustíga getur meðal annars gert greinarmun á milli fólks, reiðhjóla og hlaupahjóla, ásamt því að mæla hraða.
Verndun náttúru
Þessir teljarar eru einnig mikilvægir þegar kemur að verndun nátttúru, eins og þegar náttúruperlur fá skyndilega heimsathygli í gegnum sjónvarpsþætti eða áhrifavalda. Með talningabúnaði Eco-Counter
geta landeigendur fylgst með umferð og gripið inn í ef ágangur á svæði verður of mikill. Fyrir nánari upplýsingar um mælibúnað, hafið samband við okkur í vista@vista.is.

Á myndinni eru Heiðar, forstöðumaður viðskiptaþróunar, Andrés (miðju), stofnandi Vista, og Andrés (hægri), núverandi framkvæmdastjóri Vista.
Myndir frá Verk og vit 2026















hérna eru fleiri





