
VIÐ KUNNUM OKKAR FAG
VATNSVEITA
Sveitarfélög standa frammi fyrir fjölmörgum áskorunum í rekstri vatnsveitna. Þar má nefna leka í kerfum, að tryggja vatnsgæði, kostnaðarstýringu og eftirlit, þrýstingsstjórnun og tæknilegar áskoranir við rekstur á eldri kerfum. Þessar áskoranir krefjast sérhæfðrar þekkingar, rauntímaeftirlits og tækjabúnaðar sem hægt er að treysta á. Rekstur á vatnsveitu er einn mikilvægasti þátturinn þegar kemur að innviðaeftirliti.
Þjónusta Vista fyrir vatnsveitukerfi
Vista býður upp á fjölmarga kosti fyrir rekstur vatnsveitna, þar á meðal bætta heildaryfirsýn yfir kerfið, skilvirkari lekaleit, minni vatnssóun, hraðari viðbrögð við bilunum, einfaldari umsýslu fyrir starfsfólk og aðgengilegar upplýsingar í rauntíma (jafnvel í snjallsímum), sem gerir sveitarfélögum kleift að takast betur á við áskoranir í rekstri vatnsveitna. Sjálfvirkar stýringar og eftirlit tryggja áhyggjulausan rekstur. Lausnir frá Vista hafa aukið skilvirkni, dregið úr sóun og lækkað kostnað.


