Umhverfisvæn steypa hlýtur styrk
23/06/2026

Vista tekur þátt í nýsköpunarverkefni
Verkefnið Hagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður hlýtur vilyrði fyrir styrk úr úthlutun Asksins.

Askur – mannvirkjarannsóknasjóður er 5 ára gamall sjóður, fjármagnaður sameiginlega af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, og Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun.
- 18 verkefni hljóta styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði fyrir samtals 187,5 milljónir króna
- 54 gildar umsóknir bárust um styrki að upphæð tæplega 535 milljóna króna
Um teymið og verkefnið
Aðalumsækjandi er jarðfræðingurinn Dr. Gísli Guðmundsson hjá Tæknisetrinu og hann er jafnframt verkefnisstjóri.
Verkefnið er samstarfsverkefni Tækniseturs, BM Vallár, Vegagerðarinnar, Háskólans í Reykjavík, Vista, og Verkís. Það miðar að því að þróa umhverfisvæna steypu sem er sniðin að íslenskum aðstæðum. Áhersla er lögð á að rannsaka og prófa nýjar steypulausnir sem geta dregið úr kolefnisspori mannvirkjagerðar án þess að skerða styrk, endingu eða hagkvæmni, og þannig stutt við sjálfbærari uppbyggingu innviða til framtíðar.
Fjölmargir sérfræðingar koma að verkefninu, þar á meðal tveir sérfræðingar Vista: Eggert Guðmundsson, tæknistjóri, og Heiðar Karlsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar.
Með auknum kröfum um sjálfbærni í mannvirkjagerð er brýn þörf á áreiðanlegri þekkingu á því hvernig megi draga úr sementsmagni án þess að skerða burðarþol, endingu eða notagildi mannvirkja.
Meginmarkmið verkefnisins er að kanna hvort og hve mikið megi lækka sementsmagn í steypu með því að bæta sementsminnkun upp með fínmöluðum íslenskum íaukum, einkum móbergi/basalti með lágt kolefnisspor, það er að segja á efnum sem grunnrannsóknir hafa þegar verið gerðar á.
Steypusamsetningar verða þróaðar og prófaðar með tilliti til íslensks veðurfars, þ.e. frost- og þíðuálag og kolsýring. Prófanir munu ná bæði til hefðbundinna húsbygginga og burðarmeiri hluta, til dæmis súlur/eftirs. plötur.


Þetta hefur Eggert tæknistjóri Vista að segja um verkefnið:
„Verkefnið hefur mjög stóra samfélagslega þýðingu. Þekkingin sem af verkefninu hlýst mun gera íslenskum byggingariðnaði kleift að hagnýta nýjar umhverfisvænar steypublöndur með íslensk íblöndunarefni, lágt kolefnisspor og með þekkta efniseiginleika að verkefni loknu.
Vista hefur sérþekkingu á þeim nemum, mælitækni og mælibúnaði sem mun útvega búnað til mælinganna, ásamt því að þróa hugbúnað fyrir mælitæki verkefnisins. Oxstone, vefviðmót Vista, mun að auki veita þátttakendum greiðan aðgang og sýn á gögn í verkefninu meðan á því stendur.“
– Eggert Guðmundsson – Tæknistjóri Vista

Um Tæknisetrið
Tæknisetrið var stofnað í kjölfar þess að Nýsköpunarmiðstöð Íslands var lögð niður árið 2021. Tæknisetrið yfirtók starfsemi og þjónustu tæknideilda Nmi, og er á sama stað í Grafarvoginum, við Keldnaholt. Tæknisetur útvegar frumkvöðlum ýmsa tæknilega þjónustu, eins og gerð prótótýpa, prófanir og sérfræðiráðgjöf. Það er því kjörinn vettvangur fyrir nýsköpunarverkefni af þessari gerð.
Nánari lýsingu á verkefninu og teyminu er að finna á heimasíðu HMS.
Einnig er hægt að skoða lista yfir styrkþega.

hérna eru fleiri




