
VIÐ KUNNUM OKKAR FAG
TITRINGSMÆLINGAR
Titringsmælingar eru orðinn sjálfsagður hlutur í nútímasamfélagi. Fylgjast þarf með því hvort vélar og farartæki hafi áhrif á byggingar og íbúa. Einnig þarf að tryggja öryggi búnaðar og starfsfólks. Titringsmælingar tryggja að aðbúnaður starfsfólks og gesta sé nægjanlegur og að ekki skapist ónæði af nálægri starfsemi eða umferð.
Þjónusta Vista í titringsmælingum
Vista hefur áralanga reynslu í framkvæmd titringsmælinga fyrir fjölbreytta hópa viðskiptavina, oft við krefjandi aðstæður. Þessar mælingar gegna mikilvægu hlutverki við mat á áhrifum ýmissa framkvæmda á nærliggjandi starfsemi og íbúa.
Titringsmælingar eru sérstaklega gagnlegar þegar meta þarf áhrif atvinnustarfsemi innan bygginga á aðra starfsemi í sama húsnæði. Einnig er umtalsverður hluti titringsmælinga tengdur mati á áhrifum umferðar.
Vista hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði titringsmælinga. Þar má nefna mælingar vegna vegaframkvæmda, byggingarstarfsemi og sprenginga. Með þessum mælingum er hægt að fylgjast náið með og meta umhverfisáhrif ýmissa framkvæmda, sem stuðlar að því að lágmarka neikvæð áhrif þeirra á umhverfi og nærsamfélag.
Sérfræðiþekking Vista á þessu sviði gerir fyrirtækinu kleift að veita nákvæmar og áreiðanlegar niðurstöður, jafnvel við flóknar og krefjandi aðstæður.


