
VIÐ KUNNUM OKKAR FAG
LOFTGÆÐI
Eftirlit með loftgæðum er sívaxandi áskorun með auknum kröfum um mælingar og eftirlit. Tryggja þarf réttan búnað og vöktun fyrir öryggi á vinnustað eða fyrir almenning. Reglugerðir og krafa um hollustu er orðinn sjálfsagður hlutur og því þarf að bregðast við. Loftgæðamælar þurfa þjónustu til að tryggja nákvæmni og réttar mælingar.
Vista vaktar loftgæði
Vista hefur um áratugaskeið byggt upp dýrmæta sérfræðikunnáttu í loftgæðamælingum, bæði innanhúss og utandyra. Með þjónustu sinni styður Vista mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi við að tryggja öryggi loftgæða. Rauntímaeftirlit sem Vista býður upp á gerir viðskiptavinum kleift að fylgjast með öllum breytingum á loftgæðum, sem auðveldar þeim að bregðast hratt við ef þörf krefur. Þetta er mikilvægt fyrir öryggi innviða, íbúa og starfsmanna, og tryggir skjót viðbrögð þegar loftgæði eru í hættu.
Loftgæðabúnaður frá Vista hentar fyrir stærri sem smærri verkefni.
Algengt er að mæla: Svifryk (PM) í ýmsum stærðum; gös; CO2, CO, NO, O2, NOx og rokgjörn lífræn efni (VOC). Eldfjallagös eru líka mikilvægur þáttur í loftgæðamælingum: SO2 og H2S.


