Vista sér um mælingar og vöktun í rauntíma, eins og; jarðvegshreyfingar, loftgæði, titringsmælingar og veður. Við setjum upp mælibúnaðinn, rekum hann og skilum gögnunum þannig að þau nýtist. Sjálfvirkar viðvaranir eru sendar þegar mörk eru rofin og skýrslur er hægt að sækja á einfaldan hátt.
Mælingarnar nýtast meðal annars við framkvæmdir, orkuvinnslu og rekstur sveitarfélaga. Þær hjálpa til við að fylgjast með áhrifum á umhverfi og nærsamfélag, og sýna fram á að kröfur séu uppfylltar.
Frá mæli til niðurstöðu
Vista sér um allt ferlið, svo þú þarft ekki að halda utan um marga birgja.
- Ráðgjöf og hönnun. Hvað á að mæla, hvar og hversu oft, út frá reglugerðum og markmiðum verkefnisins.
- Búnaður og uppsetning. Val á mælibúnaði, uppsetning á staðnum og tenging við fjarskipti.
- Rekstur og viðhald. Eftirlit með búnaðinum og viðbrögð við bilunum, svo mæliröðin verði samfelld.
- Gögn og viðvaranir. Mæligildi í rauntíma og viðvörun þegar gildi fara yfir skilgreind mörk.
- Úrvinnsla og skýrslur. Yfirfarin gögn og reglulegar skýrslur til verkkaupa og eftirlitsaðila.

