Tilboð í útboð Reykjavíkur samþykkt

08/01/2026

Vista uppfærir göngu- og hjólateljara fyrir borgina.

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að ganga til samninga við Verkfræðistofuna Vista um göngu- og hjólateljara fyrir borgina.

Vista átti lægsta tilboðið sem uppfyllti kröfur Reykjavíkurborgar fyrir þessar mælingar.

Verkefnið felst í að uppfæra núverandi mæla vegna lokunar á 2G/3G farsímaþjónustu, sem er fyrirhugað að ljúki á árinu.

Mælar frá Eco-Counter

Búnaðurinn sem Vista notar er frá franska fyrirtækinu Eco-Counter og hefur verið notaður á Íslandi með góðum árangri.

Mælarnir telja umferð gangandi og hjólandi vegfarenda, auk þess að mæla hraða hjólreiðafólks á völdum stöðum.

Vista hefur áralanga reynslu af framkvæmd umhverfismælinga, þar á meðal talningu á ferðamönnum, mælingar vegna byggingaframkvæmda, og titringsmælingar fyrir Borgarlínu – Betri samgöngur.