Þungaflutningar undirbúnir
28/04/2026

Vindmylluflutningar vegna Vaðölduvers
Vista kemur að flutningi vindmylla upp á hálendið, með frostdýptarmælingum í vegum.
SoilVUE10 mælitækni
Síðustu mánuði hafa starfsmenn Vista unnið að því að setja SoilVUE10-mæla í vegi á Suðurlandi, í samstarfi við Vegagerðina. Með mælunum verður hægt að fylgjast með hitastigi í vegum í rauntíma, bæði yfirborðshita og frostdýpt. Þetta er mikilvægur liður í því að undirbúa þungaflutningana, þar sem nauðsynlegt er að vita með góðum fyrirvara hvert ástand veganna er.
SoilVUE10 er ætlað að koma í staðinn fyrir hitamæla sem eru settir undir bundið slitlag eða malarvegi. Þeir mæla hitastig í undirlagi frá 0,5 cm niður í 100 cm. Þannig er hægt að sjá hvenær frost er enn þá í undirlagi og ákveða þungatakmarkanir á vegum. Með mælunum er einnig hægt að spá fyrir um frostlyftingar og vegaskemmdir.
Mælarnir eru frá bandaríska fyrirtækinu Campbell Scientific en umboðsmenn fyrirtækisins voru meðal gesta okkar á Verk og vit í mars.


Akstursleiðin
Leiðin sem verður ekin frá Þorlákshöfn liggur fram hjá Selfossi um Eyrarbakkaveg, Votmúlaveg og Gaulverjabæjarveg. Síðan eftir Suðurlandsvegi (þjóðvegi 1) að Landvegi, og þaðan að Vaðölduveri, alls um 130 km. Þetta er flókin leið fyrir flutningalestir sem geta orðið allt að 250 metra langar. Því skiptir miklu máli að vera með rauntímamælingar á ástandi vega, eins og þeim hluta sem Vista kemur að.
Flutningarnir munu fara fram að næturlagi, hefjast í vor og standa yfir í 7-9 vikur.
Þetta verður síðan endurtekið vorið 2027.
hérna eru fleiri




