Teljari í Kópavogi
22/06/2026

Þetta er teljari sem við settum upp fyrir Kópavogsbæ við Kópavogstún.
Efst sjást tölur yfir hjólreiðafólk: fyrst eru það tölur dagsins (220) og síðan tölur yfir árið. Á þessum teljara eru árstölurnar bara frá því núna í sumar, þegar skiltið var sett upp; alls 9.137.
Síðast en ekki síst eru tölur yfir gangandi umferð: 19 þennan dag og 1.713 síðan teljarinn var settur upp.
Með þessu er hægt að fylgjast með því hversu mikið þessi leið er notuð og hvernig.
Teljarinn er frá fyrirtækinu Eco-Counter. Við höfum notað búnað frá þeim hér á landi með góðum árangri.

hérna eru fleiri




