VIÐ KUNNUM OKKAR FAG

Umferðartalning

Vista telur gangandi, hjólandi og akandi umferð á götum, stígum og ferðamannastöðum. Við bjóðum lausnir sem henta í nokkrar vikur eða til margra ára, og skilum gögnum sem sýna álag eftir tíma dags og staðsetningu.
Áreiðanleg talning sem tryggir rétt gögn, er grunnurinn að öruggu vega- og göngustígakerfi. Hún sýnir hvar álagið er mest, hvernig umferðarmannvirki eru nýtt og hvort aðgerðir í umferðaröryggismálum skila árangri.

Gangandi, hjólandi og akandi

Umferðartalningu má skipta upp í 3 flokka; gangandi, hjólandi og akandi.

Gangandi umferð

Talning á göngustígum, gangbrautum og við skóla sýnir hvar gönguleiðir eru mest notaðar og hvar þarf að bæta öryggi.

Hjólandi umferð

Talning á hjólastígum sýnir hvernig notkun þeirra þróast eftir árstíðum og tíma dags. Gögnin nýtast við forgangsröðun framkvæmda og til að meta árangur nýrra stíga.

Akandi umferð

Talning á götum og vegum sýnir umferðarþunga, álagstíma og breytingar eftir aðgerðir, til dæmis hraðahindranir eða breytt skipulag.

Lausnir Vista fyrir umferðartalningu

Við veljum lausnina út frá því hvað á að telja, hvar og hversu lengi.

  • Skammtímatalning. Færanlegir teljarar sem settir eru upp í nokkra daga eða vikur, til dæmis fyrir og eftir breytingar á götu.
  • Langtímatalning. Fastir teljarar sem safna gögnum allt árið og sýna þróun milli árstíða og ára.
  • Talning með myndgreiningu. Myndavélar með sjálfvirkri greiningu sem aðgreina gangandi, hjólandi og akandi og gefa nákvæmari talningu en hefðbundnir teljarar.

Öll gögn eru aðgengileg eftir tíma dags og staðsetningu, svo þú færð heildaryfirsýn yfir notkun gatna og stíga.

Talning ferðamanna

Aukinn fjöldi ferðamanna kallar á eftirlit með vinsælum og viðkvæmum stöðum sem þarf að verja fyrir átroðningi. Vista setur upp Eco-Counter teljara fyrir bílaumferð og gangandi gesti og sinnir eftirliti með þeim.

Teljararnir eru veðurþolnir og rafhlöðuknúnir, og senda gögn sjálfvirkt um farsímanet. Búnaðurinn safnar gögnum um fjölda vegfarenda og getur, eftir útfærslu, greint ferðastefnu, hraða og mismunandi ferðamáta. Gögnin eru aðgengileg í Eco-Visio-greiningarkerfinu, þar sem hægt er að fylgjast með þróun yfir tíma og bera saman notkun milli staða.

Mælarnir falla vel inn í umhverfið og gögnin sýna hvenær álagið er mest. Þau nýtast meðal annars við ákvarðanir um bílastæði, stíga, salerni og landvörslu, og sem rökstuðningur í umsóknum um styrki til uppbyggingar.

Persónuvernd

Búnaðurinn safnar ekki persónugreinanlegum gögnum og uppfyllir staðla um persónuvernd. Eco-Counter fylgir ströngum kröfum um persónuvernd og meðferð gagna:

  • Full nafnleynd: Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru geymdar.
  • Lágmörkun gagna: Aðeins nauðsynleg gögn eru unnin.
  • Örugg gagnageymsla: Gögn eru geymd með öruggum hætti og aðgangi er stýrt.
  • Samræmi við GDPR: Vinnsla gagna samræmist almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR), með áherslu á réttindi einstaklinga og rekjanleika gagna.

Fyrir hverja

Lausnir Vista fyrir umferðartalningu hafa árum saman hjálpað sveitarfélögum og einkaaðilum að tryggja öryggi og nýta mannvirki betur.

  • Sveitarfélög sem skipuleggja götur, göngu- og hjólastíga og aðgerðir í umferðaröryggismálum.
  • Landeigendur og rekstraraðilar ferðamannastaða sem þurfa að vita hversu margir koma og hvenær.
  • Þjóðgarðar og friðlýst svæði sem þurfa að fylgjast með álagi á viðkvæma náttúru.
  • Framkvæmdaaðilar og ráðgjafar sem þurfa umferðargögn í skipulags- og hönnunarvinnu.

Dæmi um verkefni: Teljari í Kópavogi

Áskoranir í umferðartalningu
  • Tryggðu öryggi

  • Nákvæm greining

  • Álagseftirlit

  • Heildaryfirsýn

  • Video eftirlit

Lausnir

Samstarfsaðili Vista er Eco-Counter sem sérhæfir sig í sjálfvirkum talningarbúnaði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Lausnir fyrirtækisins eru í notkun í yfir 55 löndum, jafnt í borgum sem á viðkvæmum náttúrusvæðum, til að mæla notkun göngu- og hjólastíga, gatna og útivistarsvæða.

Lausnir Eco-Counter hjálpa sveitarfélögum að skipuleggja samgönguinnviði, meta árangur framkvæmda og forgangsraða fjárfestingum á grundvelli raunverulegra notkunargagna.

Heyrðu í sérfræðingi okkar

Vista aðstoðar við að meta hvaða lausn hentar hverju verkefni og hvernig nýta má gögnin við skipulagningu og ákvarðanatöku.

Heiðar Karlsson – heidar@vista.is

TENGD VERKEFNI