
VIÐ KUNNUM OKKAR FAG
SNJÓBRÆÐSLA
Ómetanlegt er að hafa inngönguleiðir auðar og hálkulausar á erfiðum vetrardögum. Þessi kerfi eru að því leiti erfið í rekstri að þau hafa tilhneigingu til að vera heit þegar jörð er auð og slík upphitun er ósýnileg sem skapar óþarf orkusóun. Með orkueftirlitskerfinu frá Vista er hægt að bæta stýringar snjóbræðslukerfa þannig að kostnaður hefur stórlækkað og eftirlit er tryggt.
Þjónusta Vista fyrir snjóbræðslu
Vista býður upp á eftirlit með snjóbræðslu á einfaldan hátt. Mælabúnaður og hugbúnaður tryggja að ekki er verið að hita bílaplön og göngustíga á sumrin. Orkusóun er vaxandi vandamál á Íslandi með fjölgun landsmanna og aukinni ásókn í heitt vatn, sem er ekki óþrjótandi auðlind.
Tryggðu vottun og eftirlit með lausnum frá Vista.


