Sjálfbær framtíð byggingariðnaðarins

31/10/2025

Andreas Lundback starfar sem sérfræðingur Topcon í Svíþjóð og er vel kunnugur íslenska markaðnum. Topcon er alþjóðlegt fyrirtæki sem hefur verið leiðandi í þróun mælitækni, vélstýringa og stafrænna lausna. Á Íslandi hafa lausnir fyrirtækisins átt greiðan aðgang, þar sem byggingariðnaðurinn er opinn fyrir nýjungum. Við ræddum við Andreas um helstu tækifæri og áskoranir á þessu sviði.

Geturðu sagt okkur aðeins frá markmiðum Topcon og hvernig þau tengjast íslenskum iðnaði?
Markmið okkar er að bjóða framúrskarandi heildarlausnir fyrir viðskiptavini í landmælingum, byggingariðnaði, landbúnaði og námuvinnslu, með því að tengja saman hárnákvæma mælitækni, hugbúnað og gögn. Með því, til viðbótar við nýsköpun í tækni og vinnuferlum, hjálpum við fyrirtækjum að starfa á skilvirkari hátt, með aukinni framleiðni og sjálfbærni.

Hver er helsti munurinn á íslenskum og sænskum viðskiptavinum, að þínu mati? (Hvað finnst þér einkenna íslenskan markað í samanburði við hin Norðurlöndin?)

Íslenski markaðurinn, ásamt þeim skandinavísku, hefur verið mjög fljótur að tileinka sér nýja tækni í byggingariðnaði og hefur í langan tíma verið leiðandi í þróun. Sem dæmi um það má nefna að hlutfall fyrirtækja sem nota vélstýringar er mjög hátt í þessum löndum, í samanburði við önnur lönd. Í Svíþjóð eru nokkur stórfyrirtæki starfrækt um allt land, sem reka meginþorra byggingaverkefna og hafa innri teymi fyrir tækni og fjárfestingar í upplýsingatækni, á meðan íslensk fyrirtæki eru oft minni í sniðum en mjög opin fyrir tækninýjungum.

Þegar kemur að samvinnu Topcon við íslenska markaðinn, hvað telur þú vera stærsta kostinn fyrir smáþjóð?

Styrkur Topcon er fjölbreytt vöruúrval og skalanlegar lausnir. Við getum boðið lausnir sem henta verkefnum af öllum stærðum og gerðum. Með lítilli fjárfestingu geta fyrirtæki nú þegar aukið framleiðni og arðsemi með því að aðlaga lausnir okkar.

Hverjar eru helstu áskoranirnar sem þú sérð í byggingariðnaði, GPS-leiðréttingum, og vélstýringum í dag, bæði á heimsvísu og á Íslandi?
Byggingariðnaðurinn er mjög „íhaldssamur“ með afar litlar fjárfestingar í tæknilausnum samanborið við aðrar framleiðslugreinar. Tæknin þróast mjög hratt og það er áskorun að fá stjórnvöld til að aðlagast og bjóða út verk sem stuðla að notkun nýrrar tækni. Með því að nota lausnir okkar, verða byggingaverkefni ekki aðeins skilvirkari með því að spara kostnað og auka framleiðni, heldur vernda þau einnig umhverfið vegna minni úrgangs, minni eldsneytisnotkunar og meiri og sjálfbærari gæða.

Hvernig sérðu stafræna þróun og sjálfvirkni breyta því hvernig þessar greinar starfa, jafnvel meira en hefur nú þegar gerst?

Fjárfestingar í upplýsingatækni í byggingariðnaði hafa sögulega séð verið margfalt lægri en í öðrum framleiðslugreinum. Á meðan framleiðni hefur meira en tvöfaldast í öðrum greinum, hefur framleiðni í byggingariðnaði í raun dregist saman. Ein ástæða þess er sú að vinnubrögðin hafa ekki breyst og nýjar reglur og reglugerðir hafa verið innleiddar.

Hvernig sérðu fyrir þér að alsjálfvirkir ferlar í byggingariðnaði muni þróast, og hvaða hlutverki gegnir Topcon á þeirri vegferð?

Stafræn þróun er í raun að gerast hraðar en rannsóknir spáðu fyrir um fyrir nokkrum árum. Með öllu samtengdu á verkstað, nákvæmum landmælingabúnaði, stafrænni samhæfingu og öflugum 5D bygginga- og verkstjórnunartólum. Topcon er leiðandi í að knýja fram nýjar tækni- og nýsköpunarlausnir, með fjölmörg einkaleyfi og einstakar lausnir. Markmið okkar er að vera samstarfsaðili viðskiptavina okkar og hjálpa þeim að innleiða verkferla í gegnum allt verkefnið, frekar en að afhenda bara vélbúnað.

Hvernig getur Topcon stutt íslensk fyrirtæki sem glíma við manneklu, háan kostnað eða afskekkta verkstaði?
Á Íslandi er efnis- og starfsmannakostnaður mjög hár, þar sem það þarf að flytja inn mikið af efni. Þetta gerir það að verkum að notkun vélstýringa og verkstjórnunartóla verður enn gagnlegri. Með því að nota skýjalausnir okkar, geta viðskiptavinir fjarstýrt stórum hluta verkstaða þar sem öll kerfin tengjast; mæligögnum, vélstýringum og þrívíddarhönnun er hægt að stjórna í rauntíma hvaðan sem er. Við styðjum einnig samþættingu við kerfi þriðja aðila, svo að hægt sé að deila gögnum með öllum aðilum að verki.

Mannekla er vandi sem á ekki aðeins við um Ísland, og samkvæmt nýlegum skýrslum getur notkun á tækni gert greinina aðlaðandi fyrir ungt fólk sem sækist eftir nútímalegum vinnuaðferðum.

MC–Mobile er oft tengt minni vélum eins og smágröfum eða hjólaköttum, en hvaða tækifæri sérðu fyrir þessa tækni til að stækka upp í gröfur og stærri búnað?

Eins og með öll okkar kerfi, er MC–Mobile afar skalanlegt kerfi. Það þýðir að þú getur byrjað á grunnkerfi og bætt við virkni eftir þörfum, án þess að þurfa að breyta neinum íhlutum. Með öðrum orðum þá geturðu byrjað með 2D-lausn og uppfært í sjálfvirka alstöð eða GNSS-móttakara, og jafnvel bætt við sjálfvirkni á skóflur & snúningsrótora. Þannig að MC-Mobile er nú þegar hannað til að henta vélum og verkefnum af öllum stærðum.

Að þínu mati, hvaða kostir fylgja MC-Mobile fyrir verktaka sem starfa í krefjandi umhverfi eins og á Íslandi?

Þar sem MC-Mobile er 2-fyrir-1-lausn, er það fullkomið kerfi fyrir krefjandi umhverfi. Rekstraraðilinn getur notað GNSS-móttakara og spjaldtölvu úr vélinni sem mælitæki til að skrá, athuga og jafnvel útbúa 3D-líkön á staðnum, og verður þannig sjálfstæðari og sveigjanlegri.

Á Íslandi, þar sem aðstæður geta verið erfiðar og einstakar, hvaða þróun ættu fyrirtæki að búa sig undir  á komandi árum?

Tækni og stafrænar umbreytingar þróast hratt áfram. Við sjáum að það er verið að innleiða vélstýringar á verksmiðjustigi og krafan um að nýta tækni mun aukast. Til að halda samkeppnisfærni munu fyrirtæki þurfa að aðlagast nýrri tækni og nýjum vinnuferlum. Við vinnum mjög náið með samstarfsaðilum okkar á hverjum stað, sem og dreifikerfum, til að tryggja að við séum rétti samstarfsaðilinn til að hjálpa viðskiptavinum okkar að aðlaga nýjar og betri lausnir fyrir sín verk.

Hvernig heldur þú að þessar greinar og tækni komi til með að líta út eftir 5–10 ár, þegar stafræn verkfæri verða normið? (Hvert stefnir þróunin næstu 5–10 árin?)

Ég tel að verkstaðir verði mun sjálfstæðari, bæði vélar og vinnuferlar. Með gríðarmiklu gagnamagni sem myndast, ásamt notkun gervigreindar, munu ákvarðanir verða sjálfvirkar og byggjast á gögnum og raunverulegum aðstæðum, frekar en ágiskunum og áætlunum, eins og er gert í dag. Hlutverk okkar sem fyrirtækis mun einnig breytast og vera í minna mæli vélbúnaðarfyrirtæki og meira samstarfsaðili í hugbúnaði og verkstaðastjórnun. Tæknin er komin til að vera og við stefnum að því að leiða þá þróun.

Hver er að þínu mati mikilvægasta tækninýjungin á þessu sviði á þessari stundu? Og hvernig nýtir Topcon það til að vera á undan keppinautum?

Það eru mörg dæmi um nýjungar frá Topcon sem eru iðnaðarstaðall í dag. Nokkur dæmi um það eru IMU-skynjarar, MM-GPS, tvöfalt GNSS á gröfum, notkun Glonass-gervihnatta, ultrasonic staðsetningartæki, Green beam-leisermælar, Mastless MC-kerfi, o.s.frv. Okkar fókus er á heildar-vinnuferla frekar en stök kerfi. Eitt gott dæmi er „Smoothride”-kerfið fyrir vegaframkvæmdir þar sem við höfum smíðað kerfi til að halda utan um alla verkferla, frá landmælingum og hönnun, til fræsinga og malbikunarframkvæmda.

Hvaða ráð myndir þú gefa íslenskum fyrirtækjum sem vilja halda forskoti á sviði tækni á komandi árum?
Að vinna með fyrirtæki eins og Topcon sem getur útvegað vélbúnað og hugbúnað fyrir allt ferlið á verkstað. Mikilvægast er að finna lausnir sem henta ákveðnu verki eða viðskiptavini. Við leggjum okkur fram við að aðstoða viðskiptavini okkar við að finna bestu verkfærin fyrir hvert verkefni og tryggja að dreifingaraðilar okkar séu að nýta nýjustu tækni. Við hlustum líka á notendur okkar og þróum lausnir út frá þeirra þörfum.

 

Vista verkfræðistofa er umboðsaðili Topcon á Íslandi.

Fyrir nánari upplýsingar um Topcon vörur, hafið samband við vista@vista.is eða kíkið á heimasíðuna.