Samorkuþing 2025

19/05/2025

Verkfræðistofan Vista á Samorkuþingi 2025

Samorkuþing er stærsta fagráðstefna landsins í orku- og veitutengdri starfsemi og er haldið á þriggja ára fresti á Akureyri. Boðið verður upp á ýmsa fyrirlestra og málstofur um fjölbreytt viðfangsefni orku- og veitufyrirtækja á Íslandi.
Framkvæmdarstjórinn okkar Heiðar Karlsson mun halda erindi um nýjunar í RTMC rauntímamælingum í vatns- og fráveitu. Upplýsingar sem eru aðgengilegar beint í símann og auðvelt að sjá raunstöðu á ástandi kerfisins. Henta sérstaklega vel þegar kemur að bilanaleit og að fá rauntíma stöðu.
Einnig verðum við með bás á þjónustu- og vörusýningunni þar sem hægt verður að heilsa upp á okkur og fræðast um hitt og þetta sem við erum að fást við.