Efento NB-IOT þráðlaus vatnsleka-mælir
Þráðlausir vatnsleka-nemar eru notaðir á stöðum þar sem vatnsleki getur valdið miklum skemmdum, t.d. í skjalasöfnum, söfnum, netþjóna herbergjum, vöruhúsum, rannsóknarstofum. Vatnsnemarnir eru tilvaldir til að fylgjast með leka frá hitatækjum, loftræstikerfum, uppþvottavélum, þvottavélum, dælum og ísskápum eða frystum.
Vantar þig verð fyrir þessa vöru?
Sendu okkur tölvupóst fyrir nánari upplýsingar og verð.
vista@vista.is
Við höfum samband við þig fljótlega!
Upplýsingar
Greindu vatnsleka um leið!
Efento NB-IoT síritar senda gögnin um farsímakerfi (Narrowband IoT) og þurfa ekki nein viðbótartæki (ráter, gátt o.s.frv.). Mælirinn er einnig með Bluetooth, sem gerir það fljótlegt og auðvelt að stilla með snjallsíma. Nemarnir eru því annað hvort útbúnir Narrowband eða Bluetooth.
- Neminn greinir tilvist leiðandi vökva (t.d. vatns) á þeirri hæð sem skynjarinn er festur á.
- Neminn er búinn 3 m löngum ytri mæli pinna.
- Greinir tilvist vökva þar sem mælipinninn er festur við.
- Neminn sendir upplýsingarnar í skýið um leið og hann finnur vatnsleka.
- Lengd snúru: 3m (mismunandi lengd fáanleg ef óskað er).
- Rafhlöður tryggja allt að 10 ára endingu.
- NB-IoT síritar senda gögnin yfir farsímanetið til Efento Cloud eða í aðrar skýjalausnir.
- Neminn geymir 40.000 mælingar í minni, þegar minnið er fullt skrifast yfir elstu mælingarnar.
- Skoðaðu gögn í appi eða á vefsíðu.
- Hægt að stilla viðvaranir sem eru sendar með sms og email.




