Efento NB-IOT Þráðlaus lághitanemi
Hitamælir með pinna sem gerir kleift að mæla hitastigið þar sem ekki er hægt að setja síritann beint. Hægt að fá í mismunandi lengdum. Hentar vel við mælingar á sýnum, lyfjum og matvælum.
Vantar þig verð fyrir þessa vöru?
Sendu okkur tölvupóst fyrir nánari upplýsingar og verð.
vista@vista.is
Við höfum samband við þig fljótlega!
Upplýsingar
Fáðu skilaboð um breytingu á hitastigi strax! Nákvæm mæling.
Efento NB-IoT mælirinn sendir gögnin um farsímakerfi (Narrowband IoT) og þurfa ekki nein viðbótartæki (beini, gátt o.s.frv.).
- Hitastig: -200 til +200°C, nákvæmni: allt að 0,5°C í +200°C og 1,3°C í -200°C
- Mælingartími: 1 mínúta – 10 dagar (stillanlegt eftir notkun)
- Tækið geymir 40.000 mælingar í minni sínu, þegar minnið er fullt skrifast yfir elstu mælingarnar
- Rafhlaða tryggir allt að 5 ára endingu
- Síritinn er búinn 1 m löngum ytri mæli pinna
- Skoðaðu gögn í appi eða á vefsíðu.
- Hægt að stilla viðvaranir sem eru sendar með sms og email.




