Efento þráðlaus vatnslekanemi með Bluetooth
Þráðlausir vatnsleka síritar eru notaðir á stöðum þar sem stjórnlaus leki getur valdið miklum skemmdum, t.d. í skjalasöfnum, söfnum, netþjóna-herbergjum, vöruhúsum, rannsóknarstofum, og sumarbústaðnum. Þeir eru tilvaldir til að fylgjast með vatnsleka frá hitatækjum, loftræstikerfum, uppþvottavélum, þvottavélum, dælum, og ísskápum eða frystum.
Komdu í veg fyrir vatnstjón! Þráðlaus nemi sendi þér tilkynningu beint í símann ef vatn fer að leka.
Með Efento vatnsnema er hægt að fyrirbyggja að vatnsleki valdi stórtjóni. Þetta á sérstaklega við um staði þar sem umgangur er lítill, allt frá kælum á rannsóknarstofu til sumarbústaða.
Við útvegum SIM-kort með 1.100 kr. mánaðargjaldi (án vsk) (bætist við vöruverð). 15% afsláttur af því ef tekið er ár.
19.716kr. (m. vsk)
Upplýsingar
Efento Bluetooth vatnsnemi/síriti sendir gögnin um Bluetooth Gateway (e. gátt). Vaktar til dæmis gólf ef upp kemur vatnsleki.
- Síritinn greinir tilvist leiðandi vökva (t.d. vatns) á þeirri hæð sem skynjarinn er festur á
- Síritinn er búinn 3 m löngum ytri mælipinna
- Greinir tilvist vökva þar sem mælipinninn er festur við
- Síritinn sendir upplýsingarnar í skýið um leið og hann finnur vatnsleka
- Lengd snúru: 3m (mismunandi lengd fáanleg ef óskað er)
- Rafhlöður tryggja allt að 10 ára endingu
- Bluetooth síritar senda gögnin í gegnum gáttina til Efento Cloud eða í aðrar skýjalausnir.
- Tækið geymir 40.000 mælingar í minni sínu. Þegar minnið er fullt skrifast yfir elstu mælingarnar.
- Hægt að stilla viðvaranir sem eru sendar með sms og email.



