Aeropulse loftgæðamælir A200-CM

Aeropulse er næsta kynslóð loftgæðamæla. Tækið fer strax í gang og birtir fyrstu mælingar sjálfkrafa.

Fullkomið tæki fyrir heimili og smærri vinnustaði.

Tækið mælir mikilvæga umhverfisþætti sem geta haft áhrif á heilsu okkar:

Loftgæði (AQI), Koltvíoxíð (CO2), raka– og hitastig, PM2.5 og PM10 svifryksagnir, TVOC, NOx og loftþrýsting.

Uppfyllir ASHRAE 62.1-2022 staðal fyrir nákvæmni.

Kjöraðstæður innandyra

  • Hitastig: 20-23°C
  • Rakastig: 30-50%
  • CO2: undir 1000 ppm
  • TVOC: undir 500 μg/m³ (viðmið fyrir góð inniloftgæði)
  • PM2.5: undir 10 μg/m³ (mælir allar agnir undir 2.5 µm, líka PM1)
  • PM10: undir 20 μg/m³ (mælir allar agnir undir 10 µm, líka PM2.5 og PM1)

 

79.500kr. (m. vsk)

Til á lager

Upplýsingar

Hægt er að lesa mæligögnin beint af tækinu og einnig fylgjast með í Aeropulse-appinu. Auðvelt að tengast með wifi.

Lykilatriði Aeropulse

  • Löng rafhlöðuending: Yfir 300 daga rafhlöðuending með þráðlausri nettengingu (mælingar með 60 mínútna millibili).
  • WiFi: Virkar á bæði 2.4G og 5G þráðlausum netkerfum.
  • Einföld og stílhrein hönnun.
  • Nákvæmni mælinga uppfyllir staðalinn ASHRAE 62.1-2022.
  • Fjareftirlit: Aeropulse skjáborð (í síma/tölvu) fylgir frítt með, svo hægt sé að hafa umsjón með tækinu og skoða gögn í rauntíma.
  • Tilkynningar: 8 cm skjár og stika sem sýnir styrk CO2. Innbyggt viðvörunarkerfi (hljóð).

Aeropulse A200-CM mælir eftirfarandi

  • Loftgæði (AQI = Air Quality Index)
  • PM2.5 (mælir allar agnir undir 2.5 µm, líka PM1)
  • PM10 (mælir allar agnir undir 10 µm, líka PM2.5 og PM1)
  • CO2 (Koltvíoxíð)
  • TVOC (Rokgjörn lífræn efnasambönd sem geta valdið eitrunaráhrifum)
  • NOx (mengun frá umferð og iðnaði, sem er skaðleg heilsu)
  • Hitastig
  • Rakastig
  • Loftþrýstingur

______________________________________________________________

Hleðsla og uppsetning

USB-C snúra (fylgir með), (athugið að tækið styður ekki hraðhleðslu),

eða 6 AA batterí (fylgja ekki). (Athugið að leiðbeiningar segja AAA batterí, sem er ekki rétt.)

Tækið fer strax í gang og birtir fyrstu mælingar sjálfkrafa.

Hægt að festa á vegg, (1,1 – 1,7 metra hæð frá gólfi eða ca. í öndunarhæð). Veggfesting og skrúfur fylgja með. Má líka festa í loft.

Tækið er lítið og nett: 120 mm á breidd og 94 mm á hæð.

______________________________________________________________

App og skjáborð

Aeropulse app með skjáborði: “Aeropulse” á Google Play eða “Aeropulse Air” í App Store.

Appið er hægt að nota til að stilla tækið og þráðlaust net (Wi-Fi).

Skjáborð í vafra er á aeropulse.cloud og þar stofnið þið aðgang fyrir ykkar tæki.

Hægt að hafa tækið á borði, nettur viðarstandur fylgir með.

______________________________________________________________

Mikilvægi mælinga

Hitastig: Kuldi getur bælt ónæmiskerfið og ýtt undir útbreiðslu veira.
Rakastig: Of mikill eða of lítill raki getur leitt til kvefs, flensueinkenna og hættu á eitruðum myglusveppum.
Koltvíoxíð (CO2): Mikið magn koltvíoxíðs innandyra getur skert frammistöðu og ákvarðanatöku. Meiri þreyta við há gildi til lengri tíma.

PM1, PM2.5 og PM10: Svifryk (fínar agnir frá umferð, sandroki, gosmengun o.fl.), getur haft slæm áhrif á heilsu. Því smærri sem agnirnar eru, því dýpra komast þær ofan í lungun. PM10 agnir komast í lungnaberkjurnar, PM1 og smærri agnir komast niður í lungnablöðrur og þaðan út í blóðrásarkerfið. (Nánari lýsing á áhrifum svifryks á heilsu er m.a. hægt að lesa á Vísindavefnum.)

Við erum um 90% sólarhringsins innandyra. Það er til mikils að vinna að hafa inniloftið okkar hreint og heilnæmt.
Slæm loftgæði ýta undir öndunarfærasjúkdóma, þreytu, höfuðverk og slen. Góð loftun verndar líka húsnæðið, því þá myndast síður kjöraðstæður fyrir rakaskemmdir og mygluvöxt.

Loftgæðamælirinn hjálpar þér að skilja loftgæðin heima hjá þér eða á vinnustaðnum og minnir þig á að lofta reglulega út.

______________________________________________________________

Loftgæði

0-50 (Góð, grænt): Loftið er hreint og heilnæmt.

51-100 (Sæmileg, gult): Loftið er ásættanlegt; fólk með viðkvæm öndunarfæri gæti fundið smávægilega ertingu í öndunarfærum.

101-150 (Óholl fyrir viðkvæma, appelsínugult): Börn, eldri borgarar, og fólk með öndunarfærasjúkdóma ætti að takmarka langa útiveru.

151-200 (Slæm, rautt): Fólk á öllum aldri getur upplifað áhrif á heilsu; getur haft meiri alvarlegar afleiðingar fyrir fólk í viðkvæmum hópum.

201-300 (Mjög óholl): Heilsuviðvörun; getur haft alvarleg áhrif á alla. Forðist áreynslu utandyra.

301-500 (Skaðleg): Neyðarástand; hefur líklega áhrif á alla íbúa. Verið inni og gerið varúðarráðstafanir (loka gluggum, slökkva á loftræstingu o.þ.h.).

Kjöraðstæður fyrir gott inniloft – Hvað tölurnar á tækinu sýna

Hiti (tákn: hitamælir) 20 – 23°C

Raki (tákn: dropi og %) 30 – 50%

Loftþrýstingur (tákn: ský)

  • AQI loftgæði
    • 0 – 50 (frábær), 51 – 100 (góð), 101 – 150 (sæmileg), 151 – 200 (slæm), yfir 200 (hættumörk)
  • PM2.5
    • 0.0 – 12.0 (frábær), 12.1 – 35.4 (góð), 35.5 – 55.4 (sæmileg), 55.5 – 150.4 (slæm), yfir 150.4 (hættumörk)
  • PM10
    • 0 – 54 (frábær), 54.1 – 154 (góð), 154.1 – 254 (sæmileg), 254.1 – 354 (slæm), yfir 354 (hættumörk)
  • CO2
    • 400 – 800 (frábær), 801 – 1500 (góð), 1501 – 2000 (sæmileg), 2001 – 2500 (slæm), yfir 2500 (hættumörk)
  • TVOC
    • 0 – 220 (frábær), 221 – 660 (góð) 661 – 2000 (sæmileg), 2001 – 3500 (slæm), yfir 3500 (hættumörk)
  • NOx 

______________________________________________________________

A200-CM – Battery-Powered, Portable Indoor Air Quality Monitor

Ultra-Efficient for Endurance: >300 Days of Battery Life with Optimized Wi-Fi Performance

Comprehensive, battery-powered air quality monitor designed to deliver high-precision measurement of up to eight critical environmental parameters, including PM2.5, PM10, CO₂, TVOC, NOx, temperature, humidity, and air pressure. Supports over 300 days of non-stop operation on Wi-Fi with a 60-minute measurement interval, while dual-band connectivity ensures seamless integration with both 2.4 GHz and 5 GHz networks.

Complies with leading global standards such as ANSI/ASHRAE 62.1-2022, California Title 24, RESET® Grade B, and WELL Building Standard™ (WELL v2).

Framleiðandi

Aeropulse

Uppsetning

Einföld uppsetning með appi.

Gerð

Aeronode A100 I Aeronode A200CM

Tengdar vörur

Heyrðu í okkur ef þú finnur ekki það sem leitað er að: vista@vista.is