Pólsk umfjöllun um Vista
16/01/2026

Nýlega birti Efento í Póllandi umfjöllun um grunnvatnsmælingar sem Vista tók þátt í að framkvæma.
Vatnshæðarnemar sem voru notaðir í verkið eru frá Efento.
Hér er samantekt á umfjölluninni. Ef þig langar að lesa erlendu umfjöllunina í heild sinni þá er hún á heimasíðu Efento (á ensku).
Grunnvatnsmælingar á Íslandi
Í nýju verkefni var innleitt sjálfvirkt kerfi fyrir grunnvatnsmælingar á Íslandi til að auka öryggi og draga úr flóðahættu. Kerfið notar nema sem fylgjast með grunnvatnshæð í rauntíma og senda mæligögn reglulega til öruggra skýja. Þar getur starfsfólk skoðað gögnin og greint breytingar yfir tímabil, sem var lykilatriði við val á mælibúnaði.
Upplýsingarnar eru aðgengilegar í gagnvirku viðmóti þar sem starfsfólk getur sett viðvörunarmörk, sem var annað veigamikið atriði. Ef grunnvatn hækkar umfram ákveðin mörk, fær viðkomandi strax tilkynningu með tölvupósti eða SMS, sem gerir þeim kleift að bregðast hratt við og minnka hættu á tjóni.
Lausn Efento byggir á NB-IoT tækni sem notar sérstaka grunnvatnsnema til að senda gögn þráðlaust og með lítilli orkunotkun. Hún tryggir einnig langa rafhlöðuendingu og rekstraröryggi á afskekktum stöðum þar sem erfitt getur verið að tengjast rafmagni.
Smellið á myndina til að sjá nánari upplýsingar um vatnshæðarnemana í netverslun Vista.
hérna eru fleiri






