Nýtt merki byggir á gömlum grunni

17/10/2024

Byggir á grunni fyrra merkis

Í tilefni af 40 ára afmæli Vista kynnum við nýtt og uppfært merki ásamt endurnýjaðri ásýnd stofunnar. Undanfarna mánuði höfum við unnið markvisst að þessu verkefni í samstarfi við grafíska hönnuðinn Halldór Andrésson. Nýja merkið byggir á sterkum grunni þess fyrra, þar sem einkennandi stafaformin í nafni Vista fá að njóta sín betur í flæðandi og nútímalegri útfærslu. Vista mun áfram birtast í okkar einkennandi bláa lit, en nú á ferskari og dýnamískari hátt.

Snjalllausnir og tækniþróun

Þessi vinna endurspeglar þróunina sem hefur átt sér stað hjá Vista á undanförnum árum. Vista hefur fest sig í sessi sem leiðandi fyrirtæki í fjölbreyttum snjalllausnum og tækninýjungum. Nýja ásýndin er hluti af þeirri framtíðarsýn og tækniþróun sem við viljum standa fyrir. Ný og endurbætt vefsíða okkar mun einnig bjóða upp á betri innsýn í starfsemi Vista ásamt glæsilegri vefverslun sem fer í loftið von bráðar.