VIÐ KUNNUM OKKAR FAG

HITAVEITA

Sveitarfélög standa frammi fyrir fjölmörgum áskorunum í rekstri hitaveitu. Þar má nefna leka í kerfum, tryggja aðgengi að nægjanleguvatni, kostnaðarstýringu og eftirlit, þrýstingsstjórnun og tæknilegar áskoranir við rekstur á eldri kerfum. Þessar áskoranir krefjast sérhæfðrar þekkingar, rauntíma eftirlits og tækjabúnað sem hægt er að treysta á. Rekstur á hitaveitu er einn mikilvægasti þáttur þegar kemur að innviðaeftirliti.

Þjónusta Vista fyrir hitaveitukerfi

Vista býður upp á fjölmarga kosti fyrir rekstur hitaveitu, þar á meðal bætta heildaryfirsýn yfir kerfið, skilvirkari lekaleit, minni vatnssóun, hraðari viðbrögð við bilunum, einfaldari umsýslu fyrir starfsfólk og aðgengilegar upplýsingar í rauntíma (jafnvel í snjallsímum), sem gerir sveitarfélögum kleift að takast betur á við áskoranir í rekstri hitaveitu. Sjálfvirkar stýringar og eftirlit tryggja áhyggjulausan rekstur. Lausnir frá Vista hafa aukið skilvirkni og dragið úr sóun og lækkað kostnað.

Áskoranir í rekstri hitaveitu
  • Eftirlit með þjónustu

  • Ófyrirséðar bilanir

  • Kostnaðarstýring

  • Þrýstingsstjórnun

  • Nægt framboð vatns

Heyrðu í sérfræðingi okkar

Heiðar Karlsson – heidar@vista.is

TENGD VERKEFNI