Heitu vatni hleypt á alla gervigrasvelli
04/11/2026

Vellirnir undirbúnir fyrir veturinn
Vista hefur hleypt heitu vatni á alla gervigrasvelli Reykjavíkurborgar, alls um 17 velli, og sér um hitastýringu þeirra. Hitastýring er mikilvæg til að halda völlunum snjó- og frostlausum yfir vetrartímann, til að tryggja að vellirnir séu nothæfir allt árið, hvort sem það er fyrir æfingar eða fótboltaleiki.
Lausnin byggir á síritum og stýringum frá Campbell Scientific, sem sérhæfir sig í mæli- og gagnasöfnunarkerfum, og hugbúnaði frá íslenska fyrirtækinu Oxstone. Oxstone er óháð framleiðendum búnaðar og sameinar mælingar, viðvaranir og stýringu í einu viðmóti.
Lausn Vista notuð á 24 gervigrasvöllum
Fjölmörgum gervigrasvöllum er stýrt með lausn Vista, meðal annars í Kópavogi, Mosfellsbæ, Hveragerði og Sauðárkróki, til viðbótar við gervigrasvellina í Reykjavík.
Rauntíma mæligögn og veðurgögn eru nýtt til að stýra heitavatnsnotkun og yfirborðshita vallanna. Hægt er að stýra öllum völlunum í einu eða hverjum fyrir sig, án þess að fara á staðinn. Sjálfvirkar viðvaranir berast frá kerfinu ef mæligildi fara yfir skilgreind mörk eða ef mælistöð hættir að senda gögn. Þannig er hægt að bregðast snemma við ef bilanir koma upp.
Hvers vegna veljum við sírita frá Campbell?
CR1000Xe síritinn er flaggskip Campbell Scientific, enda er hann sterkbyggður og einstaklega endingargóður, og þolir vel íslenskt veðurfar.
- Hefðbundið vinnsluhitasvið er -40° til +70°C, og einnig fæst útgáfa sem þolir -55 til +85°C.
- Rafeindabúnaðurinn er í lokuðu hylki úr ryðfríu stáli sem ver gegn útvarpstruflunum, og tengipinnar eru gullhúðaðir til að verjast tæringu.
- CR1000Xe getur bæði safnað hitamælingum og stýrt lokum fyrir heitt vatn, og forritunarmálið gerir kleift að sníða lausnina nákvæmlega að verkefninu.
- Síritinn fellur vel að öðrum kerfum.
Ítarlegt prófunarferli
Búnaðurinn frá Campbell fer í gegnum mjög víðtækt og strangt prófunarferli þar sem tryggt er að búnaður sé í lagi, enda er búnaður frá Campbell keyrandi í mörg ár án þess að þurfa viðhald.
Á heimasíðu okkar finnurðu tæknilegar upplýsingar um búnaðinn og hvernig hann nýtist við hitastýringu gervigrasvalla. Lausnina er hægt að aðlaga að fjölbreyttum verkefnum, því hún styður búnað frá mismunandi framleiðendum.
Vista er umboðsaðili Campbell Scientific á Íslandi.
Mynd af gervigrasvelli MÍR er tekin óbreytt úr Oxstone-kerfinu.
hérna eru fleiri




