Fyrirlestur Eco-Counter á Verk og vit

20/03/2026

Sérfræðingur Eco-Counter, Vincent Boucicaud, er einn af erlendu gestum okkar á sýningunni Verk og vit í ár. Hann verður með fyrirlestur í sal 4 föstudaginn 20. mars kl. 13 – 14, þar sem hann fjallar um talningar á ferðamönnum og gestum með radartækni. Fyrirlesturinn er opinn öllum gestum Verk og vit. Með Vincent verður Heiðar Karlsson frá Vista.

Við erum einnig með tvo gesti frá Campbell í Bretlandi.

Talning á gestum Verk og vit

Vista sér um talningu á gestum Verk og vit með búnaði frá Eco-Counter. Búnaðinn er hægt að skoða í anddyri Laugardalshallar, bæði talningavél og skjá sem sýnir fjölda gesta.

Vista er í bás F11.

Við hlökkum til að sjá ykkur á sýningunni!