FT vindmælir með Acu-Res® tækni
13/05/2026

Við tókum nýlega í sölu þessa sérstöku vindmæla frá FT Technologies.
FT Technologies er leiðandi framleiðandi á fyrirferðarlitlum ultrahljóðs (e. ultrasonic) vindmælum sem eru þekktir fyrir langa endingu og mikla nákvæmni. Mælarnir byggja á Acu-Res® tækni og hvert eintak er sett saman og kvarðað í verksmiðju fyrirtækisins í Bretlandi. Fremstu framleiðendur vindmylla í heiminum nota vindmæla frá FT, sem hafa staðist yfir 30 óháðar prófanir, meðal annars á vatnsþoli, ísmyndun, tæringu, álagi frá sandi, ryki, hagli, titringi, höggum og eldingum.
Kostir
Vindmælarnir frá FT eru með innbyggðum nemum sem fuglar og önnur villt dýr geta ekki skemmt.
Les vindhraða frá 0-90 m/s.
Mælingar eru skráðar 10 sinnum á sekúndu.
ISO 9001 og ISO 14001 vottanir.
Myndband frá prófunum á ísingu / afísingu
Sjón er sögu ríkari – Hér er myndband sem sýnir hvað gerist í prófunum á FT vindmæli:
hérna eru fleiri




