Vista sinnir eftirliti og mælingum í fráveitu.
VIÐ KUNNUM OKKAR FAG

FRÁVEITA

Sveitarfélög standa frammi fyrir fjölmörgum áskorunum í rekstri fráveitu. Þar má nefna leka í kerfum, að tryggja eðlilegt flæði, kostnaðarstýringu og eftirlit, þrýstingsstjórnun og tæknilegar áskoranir við rekstur á eldri kerfum. Þessar áskoranir krefjast sérhæfðrar þekkingar, rauntímaeftirlits og tækjabúnaðar sem hægt er að treysta á. Rekstur á fráveitu er einn mikilvægasti þátturinn þegar kemur að innviðaeftirliti.

Þjónusta Vista fyrir vatnsveitukerfi

Vista býður upp á fjölmarga kosti fyrir rekstur vatnsveitna, þar á meðal bætta heildaryfirsýn yfir kerfið, skilvirkari lekaleit, minni vatnssóun, hraðari viðbrögð við bilunum, einfaldari umsýslu fyrir starfsfólk og aðgengilegar upplýsingar í rauntíma (jafnvel í snjallsímum). Þetta gerir sveitarfélögum kleift að takast betur á við áskoranir í rekstri vatnsveitna. Sjálfvirkar stýringar og eftirlit tryggja áhyggjulausan rekstur. Lausnir frá Vista hafa aukið skilvirkni, dregið úr sóun og lækkað kostnað.

Áskoranir í rekstri fráveitu
  • Eftirlit með þjónustu

  • Ófyrirséðar bilanir

  • Kostnaðarstýring

  • Þrýstingsstjórnun

  • Dælustýringar

Heyrðu í sérfræðingi okkar

Heiðar Karlsson – heidar@vista.is

TENGD VERKEFNI