Ferðasaga frá Íslandi

06/07/2026

Hér er örstutt ferðasaga frá samstarfsaðila okkar sem var nýlega á ferð um landið.

RM Young framleiðir hágæða vindmæla sem Vista hefur umboð fyrir.

Nýlega var markaðsstjóri RM Young, Samantha, stödd á ferðalagi um Ísland og átti ekki orð yfir náttúrufegurðinni. En það var eitt sem kom henni ánægjulega á óvart: Hvert sem hún fór, sá hún RM Young vindmæla sem Vegagerðin hefur sett upp víða um landið.

Við fengum leyfi til að þýða LinkedIn-færslu RM Young:

——————-

“Mitt á meðal fjallanna, jöklanna, öskunnar, svörtu fjaranna og hraunbreiðanna, fann hún tugi veðurstöðva með vindmælum RM Young. Samantha veit að á Íslandi þýðir vindur ekki aðeins óþægindi — hann getur rifið bílhurðir af hjörunum, myndað ófæra skafla og lokað heilu vegunum á nokkrum mínútum.

Gögnin sem þessar veðurstöðvar safna eru nauðsynleg til að íbúar þessa lands elds og ísa geti verið öruggir.

Gögnin verða að vera rétt. Í hvert einasta sinn. Þetta er falleg og mögnuð áminning um hvers vegna við gerum það sem við gerum.

Við erum ótrúlega þakklát okkar frábæra samstarfsaðila, Vista, sem hefur komið þessum veðurstöðvum í notkun um allt landið.”