Fagþing Samorku

05/05/2026

Fagþing Samorku 7.-8. maí 2026

Vista tekur þátt í fagþingi Samorku sem fer fram dagana 7.-8. maí í Hljómahöll Reykjanesbæjar.

Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja.

„Á fagþingi hita-, vatns- og fráveitna koma saman lykilaðilar úr greininni til að miðla þekkingu, ræða fjölbreytt viðfangsefni og horfa til framtíðar.“

Erindið „Hagkvæmar mælingar í rennslisbrunnum“

Á dagskrá fagþingsins verður meðal annars fjallað um tæknilegar áskoranir, öryggi, upplýsingatækni, áfallaþol og þjónustu.

Heiðar Karlsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar Vista, verður með erindið „Hagkvæmar mælingar í rennslisbrunnum“.

Nánari lýsing á dagskrá má finna á heimasíðu fagþings Samorku.

Við hlökkum til að taka þátt og sjáum ykkur vonandi sem flest!