Betri vöktun með Oxstone

21/04/2026

Vista eykur nú framboð sitt með því að gera Oxstone að sjálfgefnum hugbúnaði fyrir mæligögn.

Oxstone er rauntíma-eftirlitskerfi fyrir innviða-, framkvæmda- og umhverfismælingar. Viðskiptavinir okkar hafa smám saman verið að færast yfir í þessa nýju lausn sem býður upp á hraða uppsetningu, sveigjanlega samþættingu og rauntímagögn sem styðja betri ákvarðanatöku í rekstri. Hugbúnaðurinn er mjög notendavænn, bæði í uppsetningu og daglegum rekstri. Til dæmis geta notendur geymt öll gögn á einum stað og byggt sitt útlit innan kerfisins. Á heimasíðu Oxstone er hægt að sjá dæmi um útlit.

Fyrir hverja er Oxstone?

Veflausn Oxstone hentar öllum sem þurfa að safna, fylgjast með og nýta mæligögn í rekstri. Helstu markhópar eru meðal annars:

• Sveitarfélög, veitur og opinberir aðilar
Eftirlit með innviðum, umferðartalningum, vatns- og fráveitukerfum og umhverfisgögnum.

• Verktakar og verkfræðistofur
Mælingar á framkvæmdasvæðum, eftirlit með öryggi og framvindu verkefna.

• Orku- og iðnfyrirtæki (utan hefðbundinna veitna)
Vöktun á búnaði, framleiðsluferlum og orkunotkun.

• Rannsóknarsetur og háskólar
Gagnasöfnun í tilraunum og langtímavöktun á náttúru og umhverfi.

• Landbúnaður og fiskeldi
Skynjarar fyrir veður, jarðveg, vatnsgæði og lífríki.

• Bygginga- og fasteignarekstur
Vöktun á loftgæðum, hita, raka og orkunotkun í byggingum.

Í stuttu máli: Oxstone er fyrir alla sem vilja hafa rauntíma yfirsýn yfir mæligögn til að auðvelda rekstur og bæta ákvarðanatöku.

Hafið samband til að fá nánari upplýsingar: vista@vista.is