Andrés tekur við sem framkvæmdastjóri
11/11/2025

Andrés Andrésson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Verkfræðistofunnar Vista. Heiðar Karlsson, sem hefur gegnt því starfi síðastliðin 5 ár, mun snúa sér alfarið að sölumálum og samskiptum við viðskiptavini, að eigin ósk, og er nú forstöðumaður viðskiptaþróunar.
Heiðar hefur leitt fyrirtækið í gegnum miklar breytingar á þessum tíma með góðum árangri, sem sést meðal annars á því að Vista var í haust valið fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri annað árið í röð.
Fjölskyldufyrirtæki á góðum stað
Í sumar hóf Andrés aftur störf hjá Vista eftir stutt hlé, en hann starfaði hjá Vista í rúman áratug sem sölu- og markaðsstjóri. Í millitíðinni vann Andrés hjá Bentley Systems sem viðskiptaþróunarstjóri, opnaði kaffihús og þjálfaði badminton í Mosfellsbænum. Að auki stofnaði hann, ásamt fleirum, nýsköpunarfyrirtækið Oxstone sem þróar hugbúnað fyrir eftirlit með mælingu á innviða- og umhverfissviði.
Faðir hans, Andrés Þórarinsson, stofnaði fyrirtækið fyrir 41 ári, svo það má segja að næsta kynslóð hafi tekið við keflinu í þessu fjölskyldufyrirtæki.
Vista er á frábærum stað, þökk sé góðu og markvissu starfi sem Heiðar hefur leitt áfram síðustu árin. Ég er fullur tilhlökkunar að taka við Vista þar sem ég er alinn upp samhliða Vista og þekki rætur og gildi þess vel. Þetta eru spennandi tímar þar sem fyrirtæki, sveitarfélög og almenningur sér ávinning í rauntímaeftirliti til að auka skilvirkni, tryggja öryggi og miðla upplýsingum.
Andrés Andrésson

Vista hefur alltaf haft það að leiðarljósi að þjónusta viðskiptavini af heilindum og áreiðanleika. Það hefur verið mér mikið ánægjuefni að sjá fyrirtækið vaxa á síðustu árum og sjá fjölgun á okkar viðskiptavinum sem vilja vinna með okkur. Þörfin á mælingum og raungögnum er ekki að minnka. Ég er spenntur að halda áfram að vinna að vexti Vista með þeim góða hópi starfsmanna sem við höfum.
Heiðar Karlsson
hérna eru fleiri




