LabVIEW - forritunartækni
Tími: 15. - 16. apríl 2008 kl. 9.00 -15.30 (12 tímar)
Kostnaður: 39.500.-
Staður: Verkfræðistofan Vista, Höfðabakki 9, 2. hæð,
110 Reykjavík
LabVIEW hugbúnaðarkerfið er heimsþekkt og markaðsráðandi í tölvuknúnum mælikerfum.
LabVIEW hefur tekið nokkrum breytingum og mörg mikilvæg atriði eru nú auðveldari
í notkun en áður. Nýjasta útgáfan, LabVIEW 8.20, er ríkulega hlaðin svokölluðum
Express aðgerðum sem setja sjálfvirkt upp veigamikla kerfisþætti.
Tilgangur þessa námskeiðs er að kenna nokkur helstu grunnatriði í LabVIEW
forritunartækni, sérstaklega hvernig forrit eru byggð upp, mælingar teknar,
unnar og geymdar og loks skoðaðar. Þá verður farið í samskipti milli tölva
og hvernig skiptast má á upplýsingum yfir netkerfi. Loks verður farið yfir
mismunandi gerðir mælispjalda og eiginleikar þeirra skoðaðir.
Námskeiðið hentar tæknimönnum sem vilja kynna sér nýjustu tækni við forritun
og mælitækni, kennurum sem kenna mælitækni og hugbúnaðargerð, og stjórnendum
sem vilja fylgjast með nýjustu hugbúnaðartækni.
PcSchematic rafmagnsteikniforritið
Tími:6. mars kl. 13.00 -17:00 og 7. mars kl 9:00-17:00
Kostnaður: 32.000.-
Staður: Verkfræðistofan Vista, Höfðabakki 9, 2. hæð,
110 Reykjavík
Danska fyrirtækið DPS CAD Center ApS hefur þróað teikniforritið PC Schematic
síðan 1980. Forritið er sérhæft fyrir rafmagnshönnuði, til að teikna og hanna
rafmagnskerfi. Forritið heldur utan um tengilista og efnislista, og er með
ýmsum eiginleikum sem einfalda teiknvinnu, t.d. sjálfvirkar tengingar milli
hluta. Viðamikið táknasafn fylgir forritinu, og auk þess útvega flestir framleiðendur
táknasafn yfir rafmagnshluti.
Námskeið í grunnatriðum í notkun á teiknikerfinu PC-Schematic fyrir rafmagnsteikningar.
Meðal annars er farið í eftirfarandi:
Gerð teikningasafns, aðalhaus og undirhausar
Táknasafn og skipulag þess, og hvar má sækja tákn hjá framleiðendum
Æfingar í gerð einlínumyndar, stýrirásarmyndar og tengilista
MultiSIM og Ultiboard fyrir kennara
Tími:
Staður: Verkfræðistofan Vista, Höfðabakki 9 2. hæð , 110 Reykjavík
Kostnaður:-
Námskeiðslýsing: Multisim hugbúnaður er orðið mjög vinsæll í kennslu í rafeindafræði og
er notaður í kennslustofum um allan heim.
Meðal nýjunga nú er Ultiboard hugbúnaður til að leggja rásir út á prentplötu,
og prófanir rása í Elvis prófunartæki og með LabVIEW hugbúnaði.
Þetta námskeið er sniðið að þörfum kennara og fjallar um notkun á Multisim:
-Uppsetningu verkefna fyrir nemendur með fyrirmælum kennara.
-Notkun margvíslegra mælitækja við mælingar á eiginleikum rása.
-Bilanaleit vegna bilana í íhlutum, bilana sem kennari hefur komið fyrir.
-Uppsetningu íhluta í brauðbretti, fyrst í hugbúnaði og síðan á raunverulegu
brauðbretti.
-Notkun á NI-Elvis og LabVIEW til prófana á raunverulegum rásum í brauðbretti.
-Geymsla á mæliniðurstöðum og samanburð á herminiðurstöð og mæliniðurstöðu.
-Rafeindarásir eru lagðar út á prentplötu.
-Ladderforritun kynnt, en hún er nú hluti af Multisim9.
Loks verður fjallað um kennslugögn sem fáanleg eru án kostnaðar og mismunandi
útgáfur sem nemendum standa til boða. Þátttakendur fá nýjustu útgáfu af kennslubókinni
Practical Teaching Ideas with Multisim 9 (302 bls), ásamt öllum verkefnum
bókarinnar (yfir 100 verkefni), allt á CD diski.