Vatnsveita

Rekstraröryggi og hagkvæmni er keppikefli í nútíma rekstri. Þar er rekstur vatnsveitna engin undantekning. Tölvutæknin er í vaxandi mæli notuð til að ná þessum markmiðum, enda má í flestum tilvikum stórbæta yfirsýn, fá mun virkara eftirlit með rekstrinum, lækka rekstrarkostnað og bæta þjónustu.

Í vatnsveitukerfum er mælt rennsli, þrýstingur og hitastig vatns, hæð í tönkum og raforkunotun.
Stýringar af ýmsu tagi eru til þess að halda hæfilegum þrýsingi hjá notendum.

Mikilvægt er að skrá mælingar reglulega og hafa aðgang að upplýsingakerfi sem gerir auðvelt að skoða dægursveifur, reikna út vatnsnotkun og til að finna leka í kerfinu.