Sjálfvirkar veðurstöðvar

Vista selur stórar sem smáar veðurstöðvar. Campbell Scientific hefur mikla reynslu í gerð sjálfvirkra veðurstöðva.

Hér má sjá hvað þarf til fyrir sjálfvirka veðurstöð frá Campbell

WeatherHawk er í samstarfi við Campbell og hefur sett á markað minni veðurstöð sem safnar gögnum sjálfvirkt og er með alla nema innbyggða.

Vindmælingar á sjó
Vindmælitæki frá RM YOUNG eru þekkt um allan heim.
RM YOUNG framleiða MARINE línu sem ætluð er til vindmælinga á sjó
Vindmælirinn er tengdur skjá sem sýnir vindátt og vindhraða og getur geymt hámark þar til skjárinn er endursettur.

Vista hefur sett upp sjálfvirka veðurstöð í hlíð Esjunnar (Weatherhawk).
Stöðin er í tæplega 500 metra hæð nálægt grænu gönguleiðinni.
Veðurstöðin mælir úrkomu, hitastig, vindátt, vindhraða, loftþrýsting og sólargeislun.

Veðrið má finna á heimasíðu Vista, hér til hægri, undir veðurstöðvar, en þar er að finna opnar veðurstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.