Umferðargreinir Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur nú í nokkur ár haft mælitæki á helstu umferðaræðum borgarinnar sem mæla
umferðahraða, fjölda bíla, stærð bíla, bil milli bíla og fleiri þætti.
Gögn frá þessum mælitækjum er safnað af hugbúnaði sem kallast Umferðargreinir.
Hluti upplýsinganna er aðgengilegur fyrir almenning og má finna á heimasíðu Vista hér til hægri,
munið að velja "stað" sem skoða á.
Ýmsan fróðleik má finna út úr línuritunum.
Umferðargreinir Vegagerðarinnar

Vegagerðin notar hugbúnað frá Vista til að vinna með umferðarupplýsingar
frá hinum fjölmörgu umferðarmælistöðvum við þjóðvegi landsins í þéttbýli og dreifbýli.
Umferðarmælistöðvarnar skrá hraða og lengd allra ökutækja svo og millibil í næsta bíl.
Margar mælistöðvar telja einnig fjölda öxla. Á hverjum degi berast hundruð þúsunda skráninga
frá mælistöðvum.
Hinn nýji hugbúnaður, sem kallaður er Umferðargreinir, gerir afar auðvelt
að vinna með allar þessar umferðar-upplýsingar og gera margvíslegar skýrslur um umferð.