Skýrslugerð og geymsla mæligagna
--Geymsla mæligagna
Mæligögn eru yfirleitt geymd í textaskrám með mörgum dálkum, þar sem dagsetning og tími er
fremst í hverri línu, en mæligildin hvert í sínum dálki. Þetta fyrirkomulag er ágætt meðan
mæligögn eru lítil, en fljótlega kemur upp þörfin á að geyma mæligögn á skipulagðari hátt,
sérstakega þannig að fljótlegt sé að vinna úr þeim. VistaDataVision kerfi okkar eru góður
valkostur.
--Skoðun mælinga og skýrslugerð
Niðurstaða mælinga er oft í skýrslusniði þar sem fjöldi mælinga er dregin saman í fáar tölur.
Af því er mikið hagræði að geyma mælingar með þeim hætti að auðvelt sé að gera skýrslur og að
bera eitt tímabil saman við annað. Við höfum mikla reynslu í sérsmíði á sjálfvirkum skýrslum,
og getum oft notað staðlaðar lausnir okkar til að flýta fyrir og einfalda vinnu.