Mælikerfi
Verkfræðistofan Vista tekur að sér hönnun, uppsetningu og rekstur á mælikerfum vegna umhverfisrannsókna.
Umhverfismælinga eru mælingar á veðurfræðilegum þáttum eins og lofthita, vindátt, vindhraða og rakastigi,
en einnig ýmis konar efnasamböndum í lofti eins og CO, CO2, NOX og fleirum.
Þá er algengt að mælt sé rennsli í ám, hitastig í vatni og hæð jarðvatns í borholum.
Slíkar mælingar eru í ýmsum tilgangi, eins og við athugun á veðri, loftmengun, gróðurskilyrðum,
ríkjandi vindátt, flóðum eða áhrif jarðskjálfta. Þá má nota vindhraðamælingar til að meta möguleikann
á því að framleiða raforku með vindraforkuveri.
Til umhverfismælinga eru notaðar sjálfvirkar mælistöðvar, sem gjarnan standa á víðavangi og
fá sitt rafmagn frá sólarrafhlöðu eða lítilli vindrafstöð. Mæligögn eru sótt um farsíma reglulega,
hvort sem það er á hverjum degi eða oftar. Algengt er að mæliupplýsingar séu fluttar sjálfvirkt á
heimasíðu.
Verkfræðistofan Vista veitir alla þjónustu vegna umhverfismælinga, allt frá mælitækjum og
uppsetningu búnaðar, til reksturs og viðhalds. Vista getur gert hvort sem er, útvegað
búnað og hugbúnað, eða tekið að sér umhverfismælingar að öllu leiti.
Vista rekur tölvuver sem sækir mæliupplýsingar sjálfvirkt og setur á heimasíðu Vista.
Þá hefur Vista þróað afar fullkominn hugbúnað sem ætlaður er rannsóknarmönnum til að vinna úr
umhverfismælingum.