Rekstur loftræsti- og snjóbræðslukerfa

--Almennt um orkumál
Hvað stærri byggingar varðar, þá er reynsla okkar sú að oft er orku sóað án þess að
umsjónarmönnum sé það ljóst. Mörg atriði valda því að erfitt er að hafa heildarsýn.
Reynsla okkar er sú, að vel rekin bygging er oft 20% ódýrari í rekstri, og það án
þess að hún sé minna lýst eða minna kynnt.
--Frumskoðun
Við skoðum byggingar og gerum tillögur að úrbótum. Þá eru loftræstikerfi og önnur
kerfi athuguð, saga liðinna ára svo og orkunotkun byggingar í nokkra daga.

Frumskoðun
leiðir í ljós hvort keyrsla orkukerfa sé hagkvæm
og hvaða breytingar geti borgað sig.
--Orkueftirlit
Einfaldasta og ódýrasta leiðin til að halda orkunotkun í lágmarki er að setja upp reyndan
orkueftirlitsbúnað okkar, sem skráir reglulega raforkunotkun, heitavatnsnotkun og helstu
hitastig. Með því að skoða línurit reglulega koma bilanir greinilega í ljós.
Öll þjónusta Vista er á vefsíðum og því þarf engan sérstakan hugbúnað til orkueftirlitsins.