Val á raforkutöxtum
Ný raforkulög tóku gildi 1. júlí 2003. Með gildistöku laganna er komið á markaðsfyrirkomulagi
í raforkuiðnaðinum, sem þýðir að allir raforkunotendur eiga þess kost að
kaupa raforku af hvaða raforkusala sem er.
Nú er sala á raforku og dreifingu aðskilið, gjöld vegna raforkunnar sjálfrar eru aðgreind
frá gjöldum fyrir raforkudreifingu, en notendur munu þó fá báða þessa þætti senda á einum og sama
reikningi. Flutningskostnaður raforkunnar verður inn í gjöldum fyrir raforkudreifinguna.
Til að auðvelda orkukaupa að velja þann orkutaxta sem hagkvæmastur er út frá eigin notkun
þarf að vera til skráð 15 mínútna orkusaga. Orkusagan er síðan keyrð í gegn um orkutaxtalíkan
til að sannreyna raunverulegan kostnað við orkutaxta eða tilboð orkuseljanda.
Þegar raforkunotkun er sírituð með orkueftirlitskerfi okkar, þá er hægt að láta
orkueftirlitskerfið reikna út og bera saman raforkukostnað miðað við alla fáanlega
raforkutaxta.
Það getur verið verulegur sparnaður af því að geta valið hagkvæmasta
raforkutaxta miðað við eigin notkun.