Verkfræðistofan hefur alla tíð unnið að orkusparnaði og lækkun orkukostnaðar,
meðal annars í skrifstofubyggingum, skólum og íþróttamannvirkjum. Til að hægt sé
að ráðleggja um orkusparnað, þá þarf að gera orkunotkunina sýnilega, en það er
gert með sjálfvirkum mælitækjum, sem skrá orkunotkun í sífellu.Orkunotkun er í eðli sínu ósýnileg nema eftir á, þegar orkureikningurinn kemur.
Ef kostnaður vegna rafmagns og hita er yfir 3Mkr á ári, þá er mjög skynsamlegt að láta fylgjast með orkunotkun, með sparnað í huga. Hin almenna reynsla er sú, að orkunotkun er yfirleitt meiri en hún þyrfti að vera og skakkar þar 10-25%.
Orkusparnaður er unninn eftir föstu skipulagi sem þróast hefur hjá orkuráðgjöfum hér á landi og erlendis. Rætt er um skrefin fimm.
5 skref í orkusparnaði:
1. Síritun á orkunotkun, þ.e. raforku og heitu vatni, svo og frárennslishitastigum
2. Greining á orkunotkun, kostnaði og mögulegum sparnaði
3. Gerð líkans fyrir breytta orkunotkun
4. Framkvæma breytingar á notkun
5. Bera saman markmið og árangur
Þau atriði sem koma til greina við orkusparnað eru:
* Lækkun á skammtíma afltoppum
* Lækkun á orkunotkun utan aðalnotkunartíma, þ.e. um helgar og að nóttu
* Stilling á tækjabúnaði
* Breyting á orkutaxta
* Breytt umgengni
Oft er hægt að ná ágætum árangri með breyttri umgengni starfsfólks en stundum þarf að fjárfesta í búnaði til að tryggja árangur.
Verkfræðistofan Vista veitir alla þjónustu í orkusparnaði og -eftirliti, allt frá úttekt á mannvirkjum og aðstoð við breytingar til reglubundins eftirlits. Vista hefur yfir að ráða sjálfvirkum mælitækjum, hugbúnaði af bestu gerð og vefsíðu þar sem orkuupplýsingar eru birtar með sjálfvirkum hætti.