Orkumál

Þegar stjórnendur 500 stærstu fyrirtækja í Bandaríkjunum voru spurðir að því, hvaða
kostnaðarlið væri erfiðast að ná tökum á, þá svöruðu flestir að það væri orkukostnaður.
Ástæðan er einföld, orkunotkun er iðulega ósýnileg og kemur fyrst og fram í mánaðarlegum
orkureikningum og ársuppgjöri. Með reyndum aðferðum okkar verður orkunotkun sýnileg og
þá er hægt að ákveða hvaða tækifæri eru til að lækka orkunotkun og orkukostnað.
Hvað stærri byggingar varðar, þá er reynsla okkar sú að oft er orku sóað

án þess að umsjónarmönnum sé það ljóst. Mörg atriði valda því að erfitt er
að hafa heildarsýn.
Reynsla okkar er sú, að vel rekin bygging er oft 20%
ódýrari í rekstri, og það án þess
að hún sé minna lýst eða minna kynnt.
Við skoðum byggingar og gerum tillögur að úrbótum. Þá eru loftræstikerfi og önnur kerfi
athuguð, saga liðinna ára svo og orkunotkun byggingar í nokkra daga. Frumskoðun leiðir í
ljós hvort keyrsla orkukerfa sé hagkvæm og hvaða breytingar geti borgað sig.
Einfaldasta og ódýrasta leiðin til að halda orkunotkun í lágmarki er að setja
upp reyndan
orkueftirlitsbúnað okkar, sem skráir reglulega raforkunotkun,
heitavatnsnotkun og helstu
hitastig. Með því að skoða línurit reglulega koma
bilanir greinilega í ljós.
Öll þjónusta Vista er á vefsíðum og því þarf engan sérstakan hugbúnað til orkueftirlitsins.