Gagnaþjónusta
Fjöldi fyrirtækja og stofnana vill fá reglubundnar mælingar, en sækist ekki eftir því að
reka eigin kerfi til gagnasöfnunar.
Við önnumst gagnaþjónustu fyrir þessa aðila, setjum
upp allan búnað og höldum honum við, söfnum mæligögnum sjálfvirkt og gefum aðgang að
mælingum á heimasíðu okkar, þar sem þau eru varin með aðgangsstýringu.
Þetta er
einfaldasta og ódýrasta leiðin sem völ er á.
3 stig á mæligögnum
Mæligögnum er oft skipt í 3 stig.
1. stigið eru rauntímakerfi, þar sem starfsmenn sem annast daglegan rekstur geta séð
hver er staða nákvæmlega núna. Mælingar eru oft uppfærðar einu sinni á sekúndu sem
hentar ágætlega.
2. stigið er fyrir yfirmenn, sem vilja sjá hvernig vinnsla hefur verið að undanförnu.
Það hefur ávallt sýnt sig að það er heppilegt að draga mælingar saman og sýna samantekt
yfir tímabil. Yfirsýnin er einfaldlega miklu betri og auðvelt er um allan samanburð.
VistaDataVision kerfin eru mjög heppileg til þessa.
3. stigið er fyrir tæknimenn og rannsóknaraðila sem vilja sjá hvernig kerfin stóðust þegar
áraun var mikil (eða lítil) og hver gæðin voru. Þeir þurfa að bera saman tímabil og skoða
löng tímabil. VistaDataVision kerfin eru eins og sniðin til þessa.