Mælibúnaður

Mælibúnaður er ýmist byggður á mælistöðvum frá Campbell Scientific eða frá National Instruments. Þessar mælistöðvar geta einnig sótt gögn í vélgæslukerfi sem fyrir eru, í því skyni að bæta yfirlit um rekstur og nýtni. Mæla má öll 4-20mA merki, hitastig, þrýsting, rennsli, telja púlsa og mæla orkunotkun. Setja má einangrunarmagnara fyrir mælimerki þar sem þess er þörf.

Hversu oft eru mæligögn sótt

Í sumum tilfellum þykir nægjanlegt að sækja mæligögn sjálfvirk einu sinni á sólarhring, en í öðrum tilfellum eru mæligögn sótt á 5 sekúndna fresti. Algengur mælilotutími er 10-15 mínútur og mæligögn eru þá sótt á 1-4 klst fresti. Það fer eftir fjarskiptasambandi og v erðmæti mæligagna hversu oft þau eru sótt. Fjarskiptakostnaður hefur farið lækkandi og er ekki lengur sú hindrun sem áður var.